Liðin vika var róleg hjá lögreglunni á Suðurlandi eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar.  Einungis 12 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt og af þeim voru 8 í Rangárvallasýslu, 1 við Vík og 2  í Öræfum og 1 í Árnessýslu.   Einungis einn af þeim sem lögregla hafði afskipti af reyndist ölvaður.

11 umferðarslys voru tilkynnt til lögreglu í vikunni,  langflest tengd hálku.  Í einu þeirra, þar sem flutningabíll lenti út af vegi í Þrengslunum þann 19. nóvember, meiddist ökumaður og var fluttur til aðhlynningar á sjúkrastofnun.   Bifreiðin valt og farmur hennar, fiskur, dreifðist nokkuð um slysstaðinn.   Nokkurn tíma tók að hreinsa upp og fjarlægja bifreiðina.

Þrjú önnur slys voru tilkynnt til lögreglu í vikunni.  Tvö þeirra urðu á hverasvæðinu við Geysi þar sem ferðamenn féllu og slösuðust.  Í öðru tilfellinu missti viðkomandi meðvitund en í öllum þremur tilvikum voru viðkomandi fluttir til aðhlynningar á sjúkrastofnun.