Hælisleitendum fjölgar um sem nemur íbúum Grindavíkur á ári
10. október, 2022
Ásmundur Friðriksson

Ég hef heimsótt og kynnt mér þær aðstæður sem hælisleitendur á Íslandi búa við en kveikjan að þessari grein var heimsókn mín í blokkir á Ásbrú og Hafnarfirði þar sem hælisleitendur búa. 

Aðstæður þeirra eru óboðlegar en í einu húsinu búa um 140 manns í 50 herbergjum. Mér er sagt að aðbúnaður hælisleitenda í Grikklandi sé á pari eða betri en á Íslandi þótt öðru sé haldið fram.

Íbúafjöldi Grindavíkur á hverju ári

Nú fer sá tími í hönd að reikna megi með hælisleitendum sem koma til landsins fjölgi verulega. Vinnumálastofnun hefur 20 hótel og íbúðablokkir á leigu og til að mæta fjölgun hælisleitenda. Í síðustu viku voru tvö hótel tekin á leigu í Reykjanesbæ til viðbótar við blokkir á Ásbrú. Til áramóta þarf 3-4 blokkir til að hýsa þann viðbótarfjölda sem er á leiðinni. Svo kemur nýtt ár með yfir 3000 hælisleitendum, sem er sambærilegur heildarfjölda íbúa í Grindavík. Hér er rauðglóandi húsnæðismarkaður og fátt eftir af húsnæði nema íþróttahús, safnaðarheimili og kirkjur fyrir þetta fólk að búa í. Hugmyndir eru uppi um að flytja inn gámaeiningar og búa til sérstök hverfi fyrir hælisleitendur. Í Svíþjóð hefur reynslan af slíkum hverfum ekki verið góð, svo ekki sé nú meira sagt.

Félagsþjónustan og húsnæðismarkaðurinn sprungin

Samkvæmt samningi við ríkið taka Reykjanesbær, Hafnarfjörður, Reykjavíkurborg, Akureyri og Árborg á móti hælisleitendum og tvö þau fyrstnefndu bera höfuð og herðar yfir önnur sveitarfélög þegar kemur að fjölda hælisleitenda í þjónustu. Þar er félagsþjónustan og húsnæðismarkaðurinn sprungin. Grunnskólakerfið og heilsugæslan eru sömuleiðis komin að þolmörkum. Í Hafnarfirði áttu tveir starfsmenn að vinna að málefnum hælisleitenda en þeir eru nú 16 og umfangið allt í samræmi við þessar tölur. Sveitarfélögin vilja skiljanlega að aukinni þjónustu fylgi aukið fjármagn. Þau eru að kikna undan álaginu.

Íslenskt skattfé fjármagnar hryðjuverk

Útlendingastofnun og úrskurðarnefnd útlendingamála hefur veitt hælisleitendum frá Venesúela forgangsafgreiðslu við landamærin. Í dag er talið að 6 milljónir íbúa frá Venesúela séu að flýja bág kjör í heimalandinu. Nú þegar hafa 600 hælisleitendur frá Venesúela fengið hér hæli en 50 í Noregi. Allt bendir til þess að stór hluti hælisleitenda frá Venesúela komi frá Sýrlandi í gegnum Spán og greiði glæpahringjum þóknun til að komast til Íslands. Þegar hælisleitandinn er kominn til Íslands og fer á framfærslu ríkissjóðs koma krumlur glæpahringjanna á ný og krefjast hærri greiðslu. Glæpahringirnir hafa umboðsmenn hér á landi sem halda áfram að innheimta og beita fólkið harðræði við innheimtuna. Þannig lendir fjármagn frá íslenskum skattgreiðendum í höndum glæpahringja. Glæpahringja sem nota íslenska skattpeninga til að fjármagna mansal og hryðjuverk.

Raunveruleikinn á Íslandi er annar en fólk heldur. Umræðan hefur leitast við að kæfa þá sem reynt hafa að sporna við fótum. En þeir sem virða engin landamæri og skilja ekki að hverri krónu verður ekki eytt nema einu sinni telja að Ísland geti tekið á móti t.d. milljónum hælisleitenda frá Venesúela. Þetta fólk vill ekki sjá að hér eru allir innviðir sprungnir, það vantar margar blokkir undir hælisleitendur bara til næstu áramóta. Og á næsta ári má reikna með að þúsundir bætist í hópinn að öðru óbreyttu. Á það fólk að búa í gámahverfum þar sem skólar og félagsþjónusta er löngu sprungin? Reynsla annarra þjóða er að slík gettómyndun eru stórhættuleg hverju samfélagi.

Fyrir hverja er hælisleitendakerfið?

Fólkið sem hælisleitendakerfið var búið til fyrir hefur gleymst. Fólk sem er að flýja stríð og ofsóknir gegn minnihlutahópum og er á flótta til að bjarga eigin lífi og limum. Í staðinn tökum við á móti stærstum hluta hælisleitenda sem þegar hafa fengið vernd í öðrum löndum Evrópu. Allt að 50% hælisleitenda sem fá hér vernd hafa þegar fengið landvistarleyfi í öðrum löndum Evrópu. Það fólk er ekki að flýja stríð eða bjarga eigin lífi og limum, það er að flýja fjárhagslega afkomu í löndum Evrópu. Hælisleitendakerfið er ekki hugsað fyrir fólk sem er að flýja efnahagslega erfiðleika. Hér er framfærsla hælisleitenda betri en víðast annarsstaðar og straumurinn liggur  til betra lífs á Íslandi. Sú staðreynd birtist í því að 4-6 sinnum fleiri hælisleitendur koma til Íslands en sækja til Svíþjóðar miðað við höfðatölu. Í samanburði við Norðurlöndin sækja hér hlutfallslega flestir um hæli og hlutfallslega langflestir fá hér hæli.

Við erum að missa tökin og gröfum þannig skipulega undan möguleikum okkar Íslendinga til að standa sómasamlega að móttöku hælisleitenda, sem eiga ekki í önnur hús að venda. 

Íslensk stjórnvöld þurfa að móta heildstæða stefnu í þessum málaflokki og halda sig við hana. Búa til kerfi sem byggir á því að málsmeðferð og niðurstaða byggist á jafnræði og gagnsæi og innleiða sambærilegar reglur og gilda í nágrannalöndum okkar. Ekki kerfi sem laðar að sér starfsemi glæpahringja og þar sem tafir á málsmeðferð verða að keppikefli.

 

Ásmundur Friðriksson

Höfundur er alþingismaður.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 1 Tbl 2025
1. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst