Áfram ASÍ

Að ég hafi lært að synda í sundlaug Vestmannaeyja forðum daga? Nei ekki aldeilis. Ég lærði sundtökin þar. Ég var of niðursokkinn í að leika mér með blöðkurnar sem Bjössi bróðir gaf mér til að flækjast um á yfirborðinu. 

Ég lærði óvart að synda í sundlauginni á Laugarvatni. Þar var ég staddur með æskufélaga mínum honum Sighvati og foreldrum hans, Ella og Möggu. Við Sighvatur ákváðum að skvetta úr klaufunum í orðsins fyllstu merkingu með því að fara í sund. Ósyndur ég lét mig gluða í grunnu laugina sem reyndist of djúp fyrir mig, þannig að þegar ég skelfingu lostinn snerti botninn náði einungis að spyrna mér upp til að fá loft, sem mér skilst að sé hverjum einstaklingi í þessari aðstöðu nauðsynleg svo hann drukkni ekki. Þarna dró ég andann djúpt, dýpra en venjulega. Aftur tók botninn við og síðan dýpri andardráttur en á undan, en nú var komið að því. Ég hélt áfram eftir lauginni og djúpa laugin tók við og því engin leið að ná yfirborðinu til að ná andanum. Bara ein leið, synda. Þarna synti ég í fyrsta skipti.

Mér líður eins núna þegar ég lem þessi orð á lyklaborðið. Sá sem vogar sér að hafa skoðun á þeim ógnaröflum sem nú berjast um völdin hjá ASÍ á það á hættu að geta ekki spyrnt í botninn til að ná súrefni og á á hættu að drukkna í þeim grautarpotti sem sú barátta er.

Ragnar Óskarsson hættir sér í þetta fen án þess að vera með kút og kork, með grein sem hann skrifaði á alla netmiðla eyjanna í síðustu viku. Þar fer hann fögrum orðum um ASÍ í áranna rás og fögrum orðum um samtakamáttinn sem samtökin hafi verið þekkt fyrir. ”En nú eru blikur á lofti” segir kennarinn gamli og pólitíkusinn. Nýtt afl hefur gert sig heimangenginn í samtökunum hans, afl sem gæti verið að kljúfa samtökin af því að þau hafa upp á eitthvað nýtt að færa. Vægast sagt váleg tíðindi.

Já, sé sjónarsviðið skoðað með hlutlausum augum þá hefur þetta nýja afl meirihluta félagsmanna ASÍ á bak við sig. Þetta var kallað lýðræði „en gang i tiden“.

Skoðum þetta frá öðru sjónarhorni. Fyrir fimm árum síðan féll meirihluti Sjálfstæðismanna í bæjarstjórnarkosningum og við tók samsteypustjórn Eyjalistans og Fyrir Heimaey. Margir Sjálfstæðismenn hafa bent á að þetta hafi verið mikil mistök vegna þess að Sjálfstæðismenn og fulltrúi Eyjalistans hafi gengið samstíga í gegnum lífið án nokkurra vandkvæða. Allt var í ljúfa löð. Miðað við grein Ragnars hlýtur að vera eðlilegt að þrátt fyrir nýja bæjarstjórn sé eðlilegt að Sjálfstæðisflokkurinn stjórni af því að allt var svo gott áður. Eða hvað?

Fyrir rúmum 20 árum síðan sameinuðust vinstrimenn undir merkjum Samfylkingarinnar og nú skildi komið mótvægi við bölvað íhaldið. Viti menn. Drottinn Ragnars í pólitíkinni, sveitadrengur úr Þistilfirði, varð fúll þegar hann fékk ekki að vera aðal, hætti við að vera memm og stofnaði sinn flokk, Vinstri Græna. Ragnar fylgdi með. Já, hvar var samtakamátturinn núna? Á hann bara að vera til þegar útvöldum hentar?

Ég er ekki með þessum orðum að taka afstöðu heldur að benda á að fólk lítur lýðræðið mismunandi augum. Það er engum blöðum um það að fletta að Sólveig Anna, Ragnar Þór og Vilhjálmur eru kosin í sín hlutverk með meirihluta atkvæða sinna félagsmanna og voru með meirihluta atkvæðisbærra fulltrúa á þingi ASÍ. Væri þá ekki lag að hinir sem mynda minnihlutann myndu fylgja „Jökum“ nútímans út í sólarljós verkalýðshreyfingarinnar eða, er það kannski rétt sem svo oft er haft á orði að til séu verkalýðseigendur?

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.