Eyjastúlkur mæta Haukum Olís-deild kvenna í dag. Haukastúlkur hafa leikið vel upp á síðkastið og sitja í þriðja sæti deildarinnar 13 stig eftir 11 leiki. ÍBV er í næst neðsta sæti deildarinnar með 6 stig úr 8 leikjum.

Haukastelpur koma með flugi til Eyja og því ekkert því til fyrirstöðu að flautað verði til leiks klukkan 14.00. Engir áhorfendur eru leyfðir á leikjum, en leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport.