Alls hafa 1.000 hlauparar skráð sig í The Puffin Run 2022. Þátttakendafjöldi hefur mestur verið 870 manns og verður þetta því stærsta hlaupið til þessa. Um helgina verður listi yfir þátttakendur settur inn á thepuffinrun.com. Þeir sem náðu ekki að skrá sig geta sent tölvupóst á [email protected] og óskað eftir að vera á biðlista.
The Puffin Run 2022 fer fram 7.maí. Veitt eru peningaverðlaun til fyrstu þriggja karla og kvenna. Fyrsta sæti 100.000 kr., annað sæti 70.000 kr og þriðja sæti 50.000 kr.