ÍBV strákarnir taka á móti Val í 14. umferð Olís deildar karla. Um er að ræða fyrsta heimaleikinn hjá strákunum í tæplega tvo mánuði. Valsmenn eru sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig, en Eyjamenn eru í fimmta sæti með 17 stig. Bæði lið hafa leikið 13 leiki. Flautað verður til leiks 14.00 og er leikurinn einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.