Krakkaklúbbar Landakirkju í fullu fjöri

0
Krakkaklúbbar Landakirkju í fullu fjöri

Landakirkja heldur úti barna- og æskulýðsstarfi fyrir krakka á öllum aldri. Sérstakir krakkaklúbbar fyrir krakka í 1.-7. bekk eru á miðvikudögum í kirkjunni. Þar mæta krakkarnir í safnaðarheimilið  og þegar allir eru mættir fara allir upp í kirkju í helgistund, með söng og sögu. Að henni lokinni er haldið í safnaðarheimilið í allskonar leiki og fjör.

Nú á vorönninni þegar að margir hafa þurft að taka sér pásu frá samfélaginu vegna covid hefur hin góða þátttaka sem var í starfinu dregist saman. Við vonum að þátttakan nái aftur fyrri hæðum áður en langt um líður og hvetjum alla krakka til að koma og vera með okkur á miðvikudögum.

Tímasetningar
14:40    TTT (5.-7.bekkur)
15:30    1T2 (1.-2.bekkur)
16:30    3T4 (3.-4. bekkur)

Hér má finna dagskrá vetrarins
https://www.landakirkja.is/born-og-unglingar/sta/