Vestmannaeyjabær auglýsir eftir starfsfólki 17 ára og eldra til sumarstarfa á vegum bæjarins fyrir árið 2022. Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl nk.

Bókavörður I – Bókasafn

Flokkstjóri í vinnuskóla – Umhverfisverkefni

Forstöðumaður á gæsluvelli – Gæsluvöllur

Hafnarvörður I – 
Vestmannaeyjahöfn

Leikskólakennari/leiðbeinandi  – Kirkjugerði

Leikskólakennari/leiðbeinandi – Víkin 5 ára deild GRV

Safnvörður I – Byggðasafn/Landlyst

Safnvörður I  – Eldheimar

Starfsmaður við dagvist aldraðra – Hraunbúðir

Starfsmaður á gæsluvelli – Gæsluvöllur

Starfsmaður á leikjanámskeiði  – Sumarfjör

Starfsmaður í stuðningsþjónustu  – Málefni aldraðra og fatlaðra

Sumarstarfsmaður – Umhverfisstörf

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II  – Þjónustuíbúðir fyrir fatlað fólk

Sundlaugarvörður/starfsmaður í Íþróttamiðstöð – Íþróttamiðstöð

Verkamaður II – Umhverfisverkefni

Verkamaður III (með flokkstjórn)  – Umhverfisverkefni

Verkstjóri í áhaldahúsi/yfirmaður sumarstarfa – Umhverfisverkefni


Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um laus störf.

Almennar upplýsingar veita Sveinbjörg Ósk Hauksdóttir og Þórhildur Örlygsdóttir hjá Vestmannaeyjabæ í síma 488 2000 eða í tölvupósti: [email protected]

Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Einstaklingar sem ekki hafa rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488 2000.

Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl nk.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.