Aglowfundur / bænasamvera verður miðvikudaginn 4. maí kl. 17.00 í  Landakirkju. Undirbúið af  WDP nefnd kvenna á Englandi, Wales og Norður Írlandi
Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður 

Myndin hér að ofan er frá bresku undirbúningsnefnd bænadagsins og minnir á vorið og sumarið framundan. Það er bæn okkar að staða margra, sérstaklega  kvenna og barna sem búa við ótta, fátækt og ofbeldi megi batna. Við biðjum þess að lækning og heilög snerting komi sérstaklega yfir fólkið í Úkranínu.

Við ætlum að sameina bænadag kvenna og síðasta Aglow fund vetrarins 4. maí. Venjulega er bænadagurinn fyrsta föstudag í mars. Í lok vetrar höfum við gjarnan farið í bænagöngu og svo borðað saman á eftir. Allt þetta ætlum við að gera næsta miðvikudag, 4. maí.
Kl. 17.00 verður samvera í Landakirkju þar sem farið verður yfir efni frá alþjóðlegum bænadegi kvenna 2022.  Einnig munum við biðja fyrir Úkraínu. Kittý og konur úr kór Landakirkju munu leiða sönginn.
Um kl. 18.00 förum við í bænagöngu frá Landakirkju, við göngum um bæinn og biðjum fyrir ýmsum stöðum og málefnum. Eftir bænagönguna eða um kl. 19.00 ætlum við að borða saman. Við þökkum fyrir samveruna í vetur og biðjum þess að við að við eigum öll gott sumar. Allir eru velkomnir að vera með okkur á bænadeginum, konur og karlar.