Andri lauk í gær leik á Íslandsmóti unglinga í holukeppni sem fram fór á Hlíðavelli í Mosfellsbæ. Andri lék gott golf í mótinu, vann 16 manna úrslitin nokkuð örugglega.
Hann lék svo á móti Heiðari Steini frá NK í 8 manna úrslitunum þar sem hann sigraði 4/2.
Í undanúrslitunum lék Andri á móti Markúsi Marelssyni frá GK. Þar tapaði Andri 4/3 en lék gott golf í leiknum.
Leikurinn um 3. sætið fór fram í gærmorgun og var mjög jafn. Andri tapaði honum naumlega 2/1 og endaði í 4. sæti mótsins.