Sjöunda umferð Olís deildar karla rúllar af stað í Vestmannaeyjum í dag þegar ÍBV tekur á móti FH klukkan 13.30. Viðureignir þessara liða hafa oft á tíðum verið mikil skemmtun. ÍBV er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með átta stig en FH er í því sjöunda með sex stig.