Skólalúðrasveitin verður með hefðbundna dósasöfnun í dag þriðjudaginn 1.nóvember. Krakkarnir verða á ferðinni eftir kl.18:00 ganga í öll hús bæjarins og taka á móti áldósum, plasti og gleri með skilagjaldi.
Mikið hagræði er ef pokar eru settir út fyrir dyr, en það þarf þó að gæta að veðri hvað það varðar.