Þann 8. janúar 2024 verður hin árlega dósasöfnun handknattleiksdeildar ÍBV íþróttafélags. Gera má ráð fyrir því að okkar fólk fari af stað upp úr klukkan 18:00.

Farið verður á milli húsa og safnað, en þeir sem ekki eru heima á þessum tíma geta skilið poka eftir fyrir utan hurðina hjá sér. Jafnframt er hægt að hafa samband við Hjörvar í síma 823-2663.

Viðtökurnar sem okkar fólk hefur fengið ár eftir ár hafa verið frábærar og vonumst við eftir að þetta ár verði engin undantekning. Við þökkum þann stuðning sem við höfum fengið undanfarin ár.

Hátíðarkveðjur,
Handknattleiksráð ÍBV íþróttafélags