Andlát: Jóna Kristjana Guðmundsdóttir

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Jóna Kristjana Guðmundsdóttir Sólhlíð 19 Lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja föstudaginn 18. nóvember 2022. Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 2. desember kl. 13:00. Helga Sigurðardóttir, Ásgeir Sverrisson Kristín Sigurðardóttir, Magnús Þorsteinsson Lilja Sigurðardóttir, Guðmundur Adólfsson Barnabörn og barnabarnabörn (meira…)

Hagamýs nema land í Vestmannaeyjum

Hagamús hefur nýverið numið land í Vestmannaeyjum. Fram til þessa höfðu þar einungis verið húsamýs. Hagamús er algeng og útbreidd nagdýrategund sem að öllum líkindum kom til Íslands með landnámsmönnum á 10. öld og hefur verið hér síðan. Þetta kemur fram á vef Náttúrustofnunar Íslands þar sem segir að þrjár aðrar nagdýrategundir lifi á Íslandi, […]

Herjólfur í Eyjum – Óvissa með framhaldið

Eftir að bilun kom upp í framhlera á Herjólfi í gærkvöldi  horfum við fram á verulega röskun á samgöngum milli lands og Eyja. Herjólfur sigldi frá bryggju í Þorlákshöfn kl. 02:15 og liggur nú við bryggju í Vestmannaeyjum þar sem unnið er að viðgerð. Á heimasíðu Herjólfs segir að fyrri ferð dagsins í Þorlákshöfn falli […]

Samþykktu byggingu bílaþvottastöð við Faxastíg

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa fór fram í vikunni sem leið þar var tekin fyrir umsókn um byggingarleyfi við Faxastígur 36. Guðmundur Oddur Víðisson f.h. Orkan ehf. sótti um byggingarleyfi fyrir bílaþvottastöð á lóð fyrirtækisins Faxastíg 36, í samræmi við framlögð gögn. Umsóknin var sam­þykkt með neðangreindri bókun. “Nið­ur­staða af­greiðslufund­ar fel­ur í sér sam­þykkt bygg­ingaráforma í sam­ræmi við […]

KFS – Óðinn áfram þjálfari

Það er með ánægju sem við tilkynnum að Óðinn Sæbjörnsson verður áfram þjálfari KFS í þriðju deild. KFS náði góðum árangri í sumar og sigldi lygnan sjó í deildinni þvert á allar spár og endaði í sjötta sæti deildarinnar af tólf liðum. Með KFS leika margir ungir og efnilegir leikmenn sem hafa í gegnum tíðina […]

Herjólfur fastur í Þorlákshöfn og verið að rýma skipið

Herjólfur situr fastur í Þorlákshöfn eftir að bilun varð í stefnishurð ferjunnar. Farþegar hafa beðið í rúma fjóra tíma eftir að skipið, sem er tiltölulega nýkomið úr slipp, sigli af stað. Áætluð borttför úr Þorlákshöfn var 20:45 í kvöld. „Verið er að vinna að viðgerðum. Við komum til með að senda frá okkur tilkynningu þegar […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.