Glæsilegt jólablað Eyjafrétta ætti nú að vera komið í vel valdar lúgur. Efnið er úr ýmsum áttum. Þar má nefna viðtal við Nataliyu Ginzuhul um aðdraganda jóla í Úkraínu, Skemmtilegt spjall við Sigurð Óskarsson og Guðrúnu Erlingsdóttur, jólaspjall við vel valda Eyjamenn, 50 ára bikarmeistara, jólakrossgátuna, tjaldurinn er á sínum stað, Óli á Stapa rifjar upp atburði í gosinu og ýmislegt fleira.