Samgöngustofa veitir árlega styrki til rannsóknarverkefna sem tengjast öryggi skipa, atvinnusjómanna, farþega og búnaðar um borð í skipum en einnig verkefna sem snúa að heilsusamlegu umhverfi sjófarenda.

Gert er ráð fyrir að veita styrki til einstaklinga og/eða félaga sem koma með tillögur að lausnum í þessa átt. Heildarstyrkupphæðin hljóðar upp á 2.500.000 krónur að hámarki hvert ár og er öllum frjálst að sækja um.

Umsóknarfrestur um styrki á árinu 2023 er til 15. maí.en nánari upplýsingar um umsóknarferlið er á vef Samgöngustofu.