Í tilefni af ársfundi Samtaka þekkingarsetra SÞS stóðu samtökin fyrir málþingi á Selfossi þann 29. ágúst sl.  

Til umfjöllunar voru þau verkefni og hlutverk sem setrin gegna á sínum svæðum og mikilvægi þeirra í samfélaginu, ásamt þeirri staðreynd að setrin sem mynda samtökin eru með lausa samninga við Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytið / HVIN og hafa verið svo síðan 2018, með tilheyrandi óvissu í rekstri.  

Til þingsins voru jafnframt boðaðir fulltrúi ráðuneytisins, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra, auk eigenda setranna og aðstandenda. Á málstofunni voru erindi frá Ingunni Jónsdóttur formanni SÞS og framkvæmdastjóra Háskólafélags Suðurlands, Þorvari Árnasyni forstöðumanni Rannsóknarstofnunar Hí á Hornafirði og Tryggva Hjaltasyni stjórnarformanni Þekkingarseturs Vestmannaeyja auk erindis frá Áslaugu Örnu ráðherra. 

Í framhaldinu af erindunum voru settar upp pallborðsumræður sem í voru auk ráðherra, Sæunn Stefánsdóttir forstöðumaður Stofnunar rannsóknarsetra HÍ og stjórnarkona í Háskólafélaginu, Austurbrú og Þekkingarsetri Vestmannaeyja; Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingkona Suðurkjördæmis og Teitur Björn Einarsson þingmaður Norðvestur kjördæmis. 

Góður rómur var gerður að erindunum, sem og góðum og málefnalegum umræðum í pallborði. Félagar í Samtökum þekkingarsetra tóku með sér góðan stuðning og skilning á mikilvægi þeirrar vinnu sem unnin er á þeirra vegum og þakkar öllum þátttakendum fyrir komuna og innleggin.  

Hér má hlýða á erindi Ingunnar Jónsdóttur / Samtök Þekkingasetra – Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri HfSU 

Hér má hlýða á erindi Þorvarðar Árnasonar / https://hi.cloud.panopto.eu/Panopto/Pages/Viewer.aspx?id=aa94891c-4b61-47e6-b3ad-b06c00e87202 

Hér má hlýða á erindi Tryggva Hjaltasonar / Samtök þekkingasetra – Tryggvi Hjaltason 

Hér má hlýða á erindi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur / Samtök þekkingasetra – Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 

 Hér má hlýða á pallborðsumræður / Samtök þekkingasetra – Pallborðsumræður