Vinnslustöðin býður bæjarbúum á sinn árlega dansleik þann 21. október. Að þessu sinni munu snillingarnir í Bandmönnum leika fyrir dansi, en þeir hafa getið sér gott orð um land allt og þá ekki síður í Herjólfsdal síðustu árin.
Húsið opnar almenningi kl. 23.30 og stendur ballið til 03.00.
“Verið velkomin í Höllina á ball Vinnslustöðvarinnar,” segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.