Áfram verður leikið í 16-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ, Poweradebikar kvenna, í kvöld. Fjórir leikir fara fram og þar á meðal er viðureign Hauka og ÍBV  sem fram fer á Ásvöllum. Haukar sitja í efsta sæti olísdeildar kvenna með 10 stig en ÍBV í því fjórða með 8 stig en bæði lið hafa leikið sex leiki.

Flautað verður til leiks á Ásvöllum klukkan 19:30 en þess má geta leikurinn er í beinni útsendingu á RÚV2.

Poweradebikar kvenna, 16-liða úrslit:
Safamýri: Víkingur – ÍR, kl. 17.30.
Víkin: Berserkir – KA/Þór, kl. 19.30.
Sethöllin: Selfoss – Fram, kl. 19.30.
Ásvellir: Haukar – ÍBV kl. 19.30 – sýndur á RÚV2.