Það er krefjandi verkefni sem bíður ÍBV strákanna í dag þegar þeir mæta FH á útivelli. Lið FH situr í öðru sæti Olísdeildarinnar með 11 stig eftir 7 leiki. ÍBV er sem stendur í fimmta sæti með 9 stig eftir jafn marga leiki og getur því með sigri jafnað FH að stigum. Flautað verður til leiks í Kaplakrika klukkan 18:30.