Þann 1. janúar 2024 hættir Pósturinn alfarið að dreifa fjölpósti þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Fjöldreifingu var hætt á suðvesturhorni landsins árið 2020 en fjölpósti var hins vegar áfram dreift á landsbyggðinni, einkum þar sem ekki var kostur á öðrum dreifingaraðila. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að hætta þeirri dreifingu einnig.
Í gegnum tíðina hefur fjölpósti verið dreift með almennum bréfum en bréfapóstur hefur hins vegar dregist saman um 80% frá árinu 2010 svo samlegðaráhrifin eru ekki lengur til staðar.

Þessi ákvörðun er einnig í takt við umhverfisstefnu Póstsins en við leitum stöðugt leiða til að draga úr sóun og losun koltvísýrings. Svo hefur þeim fækkað verulega sem senda fjölpóst, enda nýta margir sér rafræna miðla til þess að koma upplýsingum og efni á framfæri.

Frá 1. janúar verður eftir sem áður hægt að senda markpóst, t.d. bæklinga og auglýsingaefni, sem almennt bréf en hann mun þá lúta skilmálum bréfa varðandi verðskrá, dreifingarplan og nafnamerkingu.