Herrakvöld ÍBV handbolta fer fram föstudaginn 17. nóvember. Veislustjóri kvöldsins er enginn annar en Logi Bergmann. Borðhald hefst klukkan 20:00 og eru fastir liðir á dagskrá eins og Happdrætti, Pílukeppnin og pöbbkviss. Miðaverð er 7.000 kr. En miðasala fer fram hjá Viktori Rakara og [email protected]. “Ekki láta ykkur vanta á herrakvöld ÍBV. Um er að ræða eitt flottasta herrakvöld sem haldið hefur verið. Þið viljið ekki missa af þessari veislu,” er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Miði á Herrakvöldið gildir einnig sem aðgöngumiði á bikarleik ÍBV B gegn Val sem fram fer á föstudag klukkan 17:30. Svo verða rútuferðir úr íþróttamiðstöðinni og niður í golfskála.