Landsliðs- og Eyjakonurnar Díana Dögg Magnúsdóttir og Sandra Erlingsdóttir eru á meðal 20 markahæstu í þýsku 1. deildinni í handknattleik að loknum átta umferðum. Frá þessu er greint í frétta á vefnum Handbolti.is. Hlé hefur verið gert á keppni í deildinni vegna heimsmeistaramótsins sem hefst undir lok mánaðarins og þráðurinn tekinn upp á nýjan leik 27. desember.

Díana Dögg, sem leikur með BSV Sachsen Zwickau, er í 12. sæti með 39 mörk í átta leikjum, eða 4,9 mörk að meðaltali í leik. Hún er skráð með 12 stoðsendingar. Sandra skaust upp í 20. sæti listans eftir að hafa skorað sjö mörk í sigurleik TuS Metzingen á Bad Wildungen á laugardaginn. Sandra hefur skorað 34 mörk, þar af 16 úr vítaköstum. Einnig er skráðar 17 stoðsendingar á Söndru.

Þær verða báðar í eldlínunni hjá íslenska landsliðinu í fyrsta leik liðsins á heimsmeistaramótinu 29. nóvember í Stavangri.