Íslensk stjórnvöld eiga í viðræðum við bandarískt frumkvöðlafyrirtæki á sviði kyndilborunar um að bora jarðgöng mun ódýrar og hraðar en áður hefur þekkst. Fyrirtækið býðst til að byrja á því að bora lagnagöng til Vestmannaeyja á næsta ári á eigin ábyrgð. Þetta kemur fram í frétt á vefnum visir.is

Aðferðin að nota ofurheitan plasma-ljósboga er þekkt úr málmiðnaði en er sögð geta valdið byltingu í jarðgangagerð.

„Við getum verið allt að hundrað sinnum fljótari en við hefðbundna gangagerð og allt frá 20 til 90 prósent ódýrari en við hefðbundna gangagerð því það er aðallega bara rafmagnið,” segir Troy Helming, stofnandi og forstjóri Earthgrid í Kaliforníu.

Svo spenntir eru íslenskir ráðamenn fyrir tækninni að þeir undirrituðu viljayfirlýsingu við íslenskan umboðsmann Earthgrid, Björgmund Guðmundsson, í Vestmannaeyjum í júnílok.
Forstjóri Earthgrid segir þrjár fyrstu borvélarnar verða tilbúnar á næsta ári og vonast til þess að Íslendingar ríði á vaðið í Evrópu með lagnagöngum til Eyja.

„Við vonum það. Ef við fáum samning á Íslandi getum við breytt einni vélinni svo hún gangi við 50 hertsa rafkerfið í Evrópu og á Íslandi.”

-Hvenær getið þið byrjað á Íslandi?

„Sennilega um þetta leyti á næsta ári. Með 2,5 metra breiðum göngum fyrir raflagnir, ljósleiðara, vatn.” Jafnvel fyrir póst- og pakkasendingar.

Og slík göng gætu haft annað hlutverk.

„Þau væru líka flóttagöng fyrir stærri 8 til 10 metra breið veggöng í framtíðinni.”

Og forstjórinn býður að Earthgrid geri þetta á eigin ábyrgð.

„Við erum sjö ára sprotafyrirtæki, við erum mjög vel fjármögnuð svo við höfum boðist til að taka á okkur alla áhættuna sem þýðir að við þurfum enga peninga frá neinum fyrr en við ljúkum áföngum í verkefnunum.”

-En hvenær verður Earthgrid tilbúið að grafa veggöng?

„Ekki á næsta ári en hugsanlega um vorið eða sumarið árið þar á eftir.”

Aðferðin er sögð umhverfisvæn en þarf mikla raforku.

„Hún útheimtir mikla orku. Við brennum engu jarðefnaeldsneyti. Við notum raforku og loft.

Fyrir göng sem eru 2,5 metrar í þvermál þurfum við fjögur til átta megavött. Það er svipað og hleðslustöð með 30 til 40 Teslum. Það er álíka mikil orka.”

Til að bora veggöng segir hann að þyrfti áttfalt meiri raforku.

Troy hefur undanfarna daga fundað með íslenskum ráðamönnum, þeirra á meðal innviðaráðherra og umhverfisráðherra, og segir þá áhugasama um framhaldið.

„Við höfum þegar undirritað viljayfirlýsingu og nú erum við að tala um að taka næstu skref til að gera skilyrtan samning þar sem við tökum alla áhættuna,” segir Troy Helming, stofnandi og forstjóri Earthgrid í Kaliforníu.