Vestmannaeyjabær hefur valið Helgu Sigrúnu Ísfeld Þórsdóttur í stöðu deildarstjóra fræðslu- og uppeldismála. Alls sóttu sex umsækjendur um en einn dró umsókn sína til baka. Þetta kemur fram í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar.

Helga Sigrún lauk B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræði með áherslu á yngri barna svið árið 2003, Dipl.Ed. gráðu í uppeldis og menntunarfræði með áherslu á sérkennslu árið 2008 og M.Ed. gráðu í sérkennslufræðum árið 2015. Hún hefur leyfisbréf til að nota starfsheitið leik- og grunnskólakennari auk framhaldskólakennari í sérkennslu. Helga Sigrún hefur starfað sem kennsluráðgjafi á Skólaskrifstofu Vestmannaeyja frá árinu 2020. Áður var hún fagstjóri í íslensku og sérkennari við Grunnskóla Vestmannaeyja og umsjónarkennari og sérkennari á yngsta stigi við Smáraskóla í Kópavogi.

Það er mat Vestmannaeyjabæjar að þekking og reynsla Helgu Sigrúnar falli vel að þeim verkefnum og hæfnisþáttum sem tilgreindir voru í starfsauglýsingunni. Helga Sigrún hefur menntun og reynslu sem nýtist í starfinu. Hún býr yfir miklum leiðtogahæfileikum, drifkrafti og frumkvæði sem mun koma að gagni við að leiða áframhaldandi umbætur hjá Vestmannaeyjabæ. Helga Sigrún býr jafnframt yfir brennandi áhuga á fræðslu- og uppeldismálum auk skipulagshæfni. Reynsla hennar af kennslu, kennsluráðgjöf og ýmsum umbótaverkefnum í skólastarfi kemur til með að nýtast í starfi.