ÍBV fær Grindavík í heimsókn í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins en dregið var rétt í þessu. Liðin hafa mæst þrisvar áður í bikarnum og höfðu Grindvíkingar betur í fyrstu tveimur viðureignunum eftir vítaspyrnukeppni, en báðir leikirnir fóru 0-0 eftir venjulegan leiktíma. Síðasta bikarviðureign liðanna var 2020 en þá sigruðu Eyjamenn örugglega 5-1 og þurfti enga framlengingu til. Leikurinn fer fram í næstu viku og hvetjum við að sjálfsögðu öll til að mæta og styðja ÍBV til sigurs.