Mikilvægi héraðsfréttamiðla undirstrikað

Málþing í tilefni af 50 ára afmæli Eyjafrétta og 10 ára afmæli eyjar.net :: Ráðherra, fulltrúar fjölmiðla og fleiri höfðu framsögu „Það er mjög mikilvægt að halda utan um framsækna og öfluga fjölmiðla á Íslandi til að segja fréttir og veita okkur, sem störfum á vettvangi stjórnmálanna eða í atvinnulífinu, nauðsynlegt aðhald sem er brýnt […]
Eyjalögin og Geirmundur koma mér alltaf í gott skap

Gísli Valtýsson, prentari, ritstjóri og ábyrgðarmaður Frétta/ Eyjafrétta mætti til leiks á Fréttum árið 1982 og þar var vinnustaður hans til tuga ára. Áður starfaði hann sem smiður hjá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja og líkaði prýðilega þar. En einn góðan veðurdag komu til hans Arnar Sigurmundsson og Sigurður Jónsson, kennari, og buðu honum í bíltúr. Þeir tveir […]
Minna stress, betri svefn og þægilegra líf

Eyjakonan Annika Vignisdóttir hafði búið í Kópavogi í 15 ár þegar hún flutti með fjölskylduna heim til Vestmannaeyja síðasta ári og sér ekki eftir því. Það sama gildir um eiginmanninn og peyjana tvo, öll eru þau himinsæl að vera komin. Eiginmaðurinn er Sigurður Georg Óskarsson, barnabarn Sigga Gogga skipstjóra og Fríðu Einarsdóttur, sonur Sigurbáru dóttur […]
Skrifað undir samninga um tvo nýja strengi til Eyja

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets hefur skrifað undir samning við fulltrúa frá Hengtong Submarine Cable um kaup og lagningu á 38,8 km af sæstrengjum. Um er að ræða tvo nýja Vestmannaeyjastrengi og nýjan streng yfir Arnarfjörðinn. Í tilkynningu á vefsíðu Landsnets segir að lagningarskip komi til landsins sumarið 2025 og mun leggja alla strengina. Nýju strengirnir munu bæta afhendingaröryggið á […]
Tímaáætlanir staðist vel í nýrri áætlun

Herjólfur flutti 68.094 farþega í júní sem er 539 farþegum minna en fluttir voru í júní árið áður, segir Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs. Hann segir jafnframt að fluttir hafa verið 181.702 farþegar fyrstu sex mánuði ársins sem er 3% aukning frá árinu áður. „Átta ferða siglingaáætlun hófst 1. júlí og hefur gengið vel að […]