Vestmannaeyjar skila milljörðum – en fá hvað í staðinn?

Það er ákveðin þreyta farin að setjast í umræðuna í Vestmannaeyjum. Ekki vegna þess að við höfum sagt of mikið, heldur vegna þess að við þurfum sífellt að minna á það sama. Við þurfum að minna á að samgöngur eru ekki lúxus. Við þurfum að minna á að innviðir eru ekki aukaatriði. Og við þurfum, […]

Íþróttamaður mánaðarins – Haukur Leó

Haukur Leó Magnússon er íþróttamaður mánaðarins. Haukur Leó er leikmaður 3. flokks og meistaraflokks karla í handbolta. Hann varð á dögunum Powerade bikarmeistari með 3. flokki eftir sigur á Val í úrslitaleik. Haukur er fyrirliði 3. flokks karla. Aldur? 18 ára  Fjölskylduhagir? Harpa Hauks er mamma mín, Magnús Elíasson er pabbi minn og síðan á ég tvö systkini, þau heita Lena María og Tómas Bent.  Hvernig er venjulegur dagur í þínu lífi?  Vakna um 09:00 fæ mér morgunmat og fer í skólann. Eftir skóla fer ég að lyfta, fæ ég mér að borða og síðan á handboltaæfingu. Á eftir fer ég eiginlega alltaf í gufu og pottana og heim að borða. Kannski að læra eða fara í tölvuna.   Aðal áhugamál fyrir utan íþróttir? Það er að fara að veiða.  Síðasta hámhorfið? Breaking Bad.  Hver er þín helsta fyrirmynd í íþróttum? Guðjón Valur Sigurðsson  Mottó? Lífið er núna.  Hvert stefnir þú handboltanum? Er það ekki bara atvinnumennskan.  Hvað hefur staðið upp úr á tímabilinu hingað til? Að hafa fengið svona stórt verkefni í meistaraflokki og auðvitað að verða bikarmeistari með 3. flokki  Hvaða þrjá einstaklinga tækir þú með á eyðieyju og af hverju?  Ég myndi taka Leó Snæ, Andra Magg og Jason. Ég myndi taka þessa með því ég held við myndum ná að lifa af á eyjunni.  Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Ég bjó í Serbíu þegar ég var yngri og talaði serbnesku.  Hefur þú stundað aðrar íþróttir en handbolta? Já, ég æfði fótbolta og fimleika þegar ég var yngri og karate þegar ég átti heima í Serbíu.  Hvað einkennir 3. flokk karla í handbolta? Dugnaður, samstaða og stemning.  Hvernig var tilfinningin að vera Powerade bikarmeistari? Veit ekki alveg hvernig á að lýsa tilfinningunni, en það var geggjað.  Hvaða ráð myndir þú gefa yngri iðkendum í íþróttum? Haltu áfram að æfa, reyna að vera í eins mörgum íþróttum eins lengi og þú getur og auðvitað borða nóg og sofa vel.  Hvað er velgengni fyrir þér? Velgengni fyrir mér er bara að sjá framfarir bæði í gyminu og á æfingum.  Eitthvað að lokum? Áfram ÍBV  (meira…)

Bæjarfulltrúar tjá sig ekki um útboð heilsuræktar

Bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum hafa ekki tekið efnislega afstöðu til spurninga Eyjafrétta um útboð sveitarfélagsins vegna reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Minnihlutafulltrúi gagnrýnir hins vegar að útboðsskilyrði hafi ekki verið lögð fyrir bæjarráð áður en útboðið var auglýst og segir hæfiskröfur útiloka marga mögulega bjóðendur. Vísa til þess að útboð sé í gangi Þrír bæjarfulltrúar sem […]

Úrslitakeppnin af stað – ÍBV tekur á móti KA

ÍBV og KA mætast í fyrsta leik úrslitakeppni Olís deildar karla í handbolta í kvöld. Leikurinn fer fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og hefst klukkan 18:00. Það er mikið undir strax í fyrsta leik og ljóst að Eyjamenn ætla að byrja einvígið af krafti. Handknattleiksdeild ÍBV hefur kallað eftir öflugum stuðningi og hvetur Eyjamenn til að […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.