Samveran í Dalnum stendur upp úr

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið. Nafn: Bjarni Rúnar Einarsson.  Fjölskylda: Unnustan Arna Hrund og börnin Einar Bent, Myrra Rún og Björt.  Hvernig leggst Þjóðhátíðin í þig?  Nokkuð vel. Mér finnst alveg kominn tími á betra veður en hefur verið undanfarin ár.  Hversu oft hefur þú farið á Þjóðhátíð? Ég held að þessi verði sú fertugasta.  Hvað stendur upp úr á hverju ári? Fyrst og fremst samveran með fjölskyldu og vinum. Annars finnst mér brennan og brekkusöngurinn oftast standa upp úr.  Uppáhalds Þjóðhátíðarhefðin? Tjöldunin. Svo er skyldumæting á setninguna og ég elska að fá heita súpu uppi í tjaldi þegar komið er úr brekkunni á kvöldin.  Hvert er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið? Þau eru nú mörg mjög góð, en þau sem […]

Birgitta Haukdal spennt að mæta í dalinn í kvöld

Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör sameina krafta sína í Þjóðhátíðarlaginu Flugeldar, þar sem þau blanda saman ólíkum tónlistarheimum í ferskri nálgun á hina rótgrónu hefð. Í viðtali við Eyjafréttir segir Birgitta frá því hvernig samstarfið varð til, hvað kom henni mest á óvart í sköpunarferlinu og hvers vegna Þjóðhátíð á sérstakan stað í hjarta hennar. […]

Skiptitaskan mikilvæg þessa hátíðina

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið. Nafn: Ólöf María Stefánsdóttir Fjölskylda: Daði Magnússon og Dagur Daðason. Hvernig leggst þjóðhátíðin í þig? Mjög vel! […]

Vígslukvöld í Herjólfsdal — myndir og myndbönd

Hefð er fyrir því að ýmis mannvirki í Herjólfsdal séu vígð á fimmtudagskvöldinu fyrir Þjóðhátíð og engin breyting varð þar á í gærkvöldi. Góð stemning ríkti í Dalnum þegar gestir komu saman við Mylluna og Vitann hjá félögum í VKB. Við Mylluna fór Jóhann Pétursson að venju með hnitmiðaða vígsluræðu við góðar undirtektir viðstaddra. Vígslan […]

Bærinn leggur út 461 milljón á meðan beðið er svara

Vestmannaeyjabær greiðir 461,4 milljónir króna til NOV vegna kaupa á almannavarnarlögninni NSL-4. Greiðslan verður fjármögnuð með handbæru fé bæjarins, en áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er um þrír milljarðar króna. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna kaupanna. Ekki hafði verið gert ráð fyrir greiðslunni í fjárheimildum ársins þar sem bæjarstjórn telur […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.