Óska er eftir tilnefningum frá bæjarbúum

Vestmannaeyjabær óskar eftir tilnefningum frá bæjarbúum til umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2026. Veittar verða viðurkenningar í fimm flokkum: Snyrtilegasta eignin Snyrtilegasti garðurinn Snyrtilegasta fyrirtækið Endurbætur til fyrirmyndar Framtak á sviði umhverfismála Bæjarbúar eru hvattir til að senda inn tillögur að einstaklingum, eignum eða fyrirtækjum sem þeir telja eiga viðurkenningu skilið. Tilnefningar skulu sendar á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is […]