Skólastarf að hefjast á ný í FÍV
Framhaldsskólinn hefur gögu sína á fimmtudaginn n.k.

Nú styttist í að skólastarf hefjist á ný í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Nýnemar mæta til leiks á morgun, miðvikudaginn 19. ágúst, en kennsla hefst daginn eftir, fimmtudaginn 20. ágúst.

Nýnemadagurinn er ætlaður nemendum sem eru að hefja framhaldsskólagöngu sína. Nýnemar mæta klukkan 13:00 á sal skólans þar sem þeir hitta umsjónarkennara sína og fá meðal annars kennslu og leiðsögn í upplýsingatækni.

Nemendur eru beðnir um að hafa með sér nýuppfærða fartölvu og rafræn skilríki.

Kennsla í dagskóla hefst fimmtudaginn 20. ágúst samkvæmt stundatöflu og þar með fer skólastarfið formlega af stað á ný.

Nýjustu fréttir

Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.