Eyjamenn áberandi meðal styrkþega Terra

Tvö verkefni með sterka tengingu við Vestmannaeyjar eru meðal þeirra fjögurra sem hlutu fyrstu sjálfbærnistyrki Terra. Alls bárust um 70 umsóknir um styrkina. Eyjakonan Selma Ragnarsdóttir, klæðskeri og kjólameistari, stendur að Loopable ásamt Ingu Hrönn frá Reykjanesbæ. Þær vinna að því að þróa aðferð til að endurvinna fatnað og annan textíl í hágæða prjónagarn. Í […]

Hjörtur Leó sigurvegari eldri flokks á Þjóðhátíð

Hin árlega söngvakeppni barna fór fram í Herjólfsdal á laugardegi og sunnudegi um Þjóðhátíðina. Það voru þeir Emil Tumi og Hjörtur Leó sem stóðu uppi sem sigurvegarar, Emil Tumi í yngri flokki og Hjörtur Leó í þeim eldri. Í kjölfarið fengu þeir að stíga á stóra sviðið á sunnudagskvöldinu og flytja lög sín fyrir þjóðhátíðargesti […]

Nýtt dýpkunartímabil að hefjast í Landeyjahöfn

Dæluskipið Sebastiano Caboto liggur nú í Vestmannaeyjahöfn en það mun sinna viðhaldsdýpkun í Landeyjahöfn næstu árin. Samningur Vegagerðarinnar við belgíska dýpkunarfyrirtækið Jan De Nul tekur gildi 15. september. Halldór B. Halldórsson tók meðfylgjandi myndband af skipinu í Vestmannaeyjahöfn. Eyjafréttir greindu frá komu skipsins til Vestmannaeyja í gær. Sebastiano Caboto mun sinna reglubundinni viðhaldsdýpkun hafnarinnar samkvæmt […]

Íþróttamaður mánaðarins – Sigurmundur Gísli Unnarsson

Handboltamaðurinn Sigurmundur Gísli Unnarsson er íþróttamaður mánaðarins. Simmi, eins og hann er jafnan kallaður, er 17 ára markvörður ÍBV og einn af efnilegri leikmönnum félagsins. Hann hefur á undanförnum árum tekið þátt í fjölmörgum verkefnum með yngri landsliðum Íslands. Í sumar var hann meðal annars hluti af u-18 ára landsliði Íslands sem tók þátt í […]

Ný skólalóð Sóla formlega tekin í notkun

Leikskólalóðin við Sóla tók sannkölluðum stakkaskiptum í sumar og hefur ný og glæsileg lóð nú verið formlega tekin í notkun. Frá þessu er greint á vef Vestmannaeyjabæjar. Lögð var áhersla á að skapa fjölbreytt, fallegt og spennandi leiksvæði fyrir börnin. Linda Mjöll Stefánsdóttir átti veg og vanda að hönnun og vinnu við lóðina. Daníel Hjörtur […]

Engin niðurstaða um frekari fjármögnun ríkisins á NSL-4

Ekki liggur enn fyrir niðurstaða í viðræðum Vestmannaeyjabæjar við stjórnvöld um frekari aðkomu ríkisins að fjármögnun almannavarnalagnarinnar NSL-4. Málið var til umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja á miðvikudag. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri fór yfir stöðu málsins og kom fram að allar upplýsingar lægju nú fyrir í innviðaráðuneytinu. Í fundargerð er lögð áhersla á að um almannavarnalögn […]

Herjólfur siglir eina ferð fyrir hádegi

Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar í morgunsárið, að því er segir í tilkynningu frá skipafélaginu. Brottför frá Vestmannaeyjum er kl. 7:00 og frá Landeyjahöfn kl. 10:45. Eftirfarandi ferðir falla niður: Frá Landeyjahöfn kl. 8:15. Frá Vestmannaeyjum kl. 9:30. Nánari tilkynning um siglingar dagsins verður gefin út kl. 11:00, segir jafnframt í tilkynningunni. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.