Eyjamenn áberandi meðal styrkþega Terra
Loopable og Odasia í hópi fjögurra verkefna sem valin voru úr um 70 umsóknum
Fulltrúar Eyjaverkefnanna Loopable og Odasia taka við sjálfbærnistyrkjum Terra. Loopable vinnur að endurvinnslu textíls í hágæða prjónagarn en Odasia þróar hljóðvistarlausnir úr endurunnum textíl. Ljósmynd/Terra

Tvö verkefni með sterka tengingu við Vestmannaeyjar eru meðal þeirra fjögurra sem hlutu fyrstu sjálfbærnistyrki Terra. Alls bárust um 70 umsóknir um styrkina.

Eyjakonan Selma Ragnarsdóttir, klæðskeri og kjólameistari, stendur að Loopable ásamt Ingu Hrönn frá Reykjanesbæ. Þær vinna að því að þróa aðferð til að endurvinna fatnað og annan textíl í hágæða prjónagarn.

Í tilkynningu frá Terra segir að markmiðið sé að nýta garnið til áframhaldandi framleiðslu og halda textílnum þannig lengur innan hringrásarhagkerfisins.

Hitt Eyjaverkefnið er Odasia, sem feðginin Emma og Bjarni Ólafur standa að. Verkefnið snýst um að þróa hljóðvistarlausnir úr endurunnum textíl og gefa textílúrgangi þannig nýtt og verðmætt hlutverk.

Terra veitti sjálfbærnistyrkina nú í fyrsta sinn og var áhersla lögð á umhverfis- og hringrásarlausnir. Eftir yfirferð umsókna voru sex verkefni valin til að kynna hugmyndir sínar fyrir valnefnd og fjögur þeirra hlutu styrk.

Auk Loopable og Odasia hlutu verkefnin IceSand og GróBox styrk. IceSand vinnur að því að umbreyta glerúrgangi í sand sem meðal annars má nýta í glompur á íslenskum golfvöllum. GróBox þróar lífbrjótanlegar umbúðir úr sveppamassa sem ætlað er að leysa frauðplast af hólmi, meðal annars í íslenskum sjávarútvegi.

Markmið Terra með styrkjunum er að styðja verkefni sem efla hringrásarhagkerfið, draga úr sóun og stuðla að sjálfbærari framtíð með nýsköpun og framsýnum lausnum. Styrkþegarnir munu kynna framgang verkefna sinna á stjórnendadegi Terra í haust.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn áberandi meðal styrkþega Terra
Hjörtur Leó sigurvegari eldri flokks á Þjóðhátíð
Nýtt dýpkunartímabil að hefjast í Landeyjahöfn
Íþróttamaður mánaðarins – Sigurmundur Gísli Unnarsson
Ný skólalóð Sóla formlega tekin í notkun
Engin niðurstaða um frekari fjármögnun ríkisins á NSL-4
Herjólfur siglir eina ferð fyrir hádegi
Sterkur lokakafli skilaði ÍBV sigri gegn Selfossi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.