Engin niðurstaða um frekari fjármögnun ríkisins á NSL-4
Bærinn bíður enn svara vegna opinberra gjalda og tolla :: Þrýstiprófun lagnarinnar hafin
Vatnslögnin var tekin á land í Eyjum í síðasta mánuði. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Ekki liggur enn fyrir niðurstaða í viðræðum Vestmannaeyjabæjar við stjórnvöld um frekari aðkomu ríkisins að fjármögnun almannavarnalagnarinnar NSL-4. Málið var til umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja á miðvikudag.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri fór yfir stöðu málsins og kom fram að allar upplýsingar lægju nú fyrir í innviðaráðuneytinu. Í fundargerð er lögð áhersla á að um almannavarnalögn sé að ræða sem skili sveitarfélaginu engum tekjum, frekar en almannavarnir annars staðar á landinu.

Verulegur kostnaður vegna gjalda og tolla

Töluverður kostnaður fellur til vegna opinberra gjalda og tolla við kaup og innflutning lagnarinnar. Vestmannaeyjabær sendi fjármála- og efnahagsráðuneytinu erindi fyrir rúmu ári og óskaði eftir breytingum á lögum um virðisaukaskatt til að koma í veg fyrir þann kostnað.

Beiðninni hafði ekki verið svarað formlega og óskaði bærinn því einnig eftir að gjöld vegna lagnarinnar yrðu felld niður. Sú beiðni hefur verið ítrekuð nokkrum sinnum án formlegra svara.

Í fundargerð segir að verði gjöldin ekki felld niður megi ætla að stór hluti þeirra 800 milljóna króna sem ríkið hefur samþykkt og greitt vegna lagnarinnar renni aftur til ríkisins í formi opinberra gjalda og tolla.

Rétt fyrir fund bæjarstjórnar barst svarbréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu vegna erindisins. Bréfið verður tekið til efnislegrar meðferðar á næsta fundi bæjarráðs.

Bíða skýrslu um tjónið

Bæjarstjóri fór jafnframt yfir stöðu málsins vegna tjóns sem varð á NSL-4 við útlagningu hennar í ágúst. Tjónið var tilkynnt vátryggjendum án tafar og hefur málið verið unnið í samráði við þá frá upphafi.

Umfang tjónsins liggur ekki enn fyrir, en beðið er eftir skýrslu SubSea7, sem annaðist útlagningu lagnarinnar. Þrýstiprófun á lögninni hófst síðastliðinn þriðjudag og stendur enn yfir.

Bæjarstjórn samþykkti sameiginlega bókun þar sem afstaða hennar er ítrekuð:

„Bæjarstjórn Vestmannaeyja ítrekar enn og aftur að Vestmannaeyingar eiga ekki að greiða fyrir almannavarnir frekar en önnur sveitarfélög. Mikilvægt er að samtal við stjórnvöld varðandi fjármögnun almannavarnarlagnarinnar klárist sem fyrst.“

Nýjustu fréttir

Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.