Messa til minningar um fórnarlömb umferðarslysa verður í Landakirkju klukkan 13 á sunnudag, 15. nóvember. Þar segir Þóranna Sigurbergsdóttir frá reynslu sinni af því að missa son sinn í bílslysi. Um kvöldið verður kertastund við kirkjugarðinn klukkan 20.
Fram kemur í tilkynningu frá Landakirkju að viðbragðsaðilar í Eyjum taki þátt í messunni. Kirkjugestum gefst kostur á að kveikja á kerti til minningar um þau sem látist hafa í umferðarslysum eða tendra bænakerti. Kór Landakirkju syngur undir stjórn Kitty Kovács. Öll eru velkomin í messuna.
Í tilkynningunni er lögð áhersla á að raddir þeirra sem misst hafa ástvini í umferðarslysum fái að heyrast. Frásögn Þórönnu varpar ljósi á það sem fjölskyldur og ástvinir takast á við eftir slíkan missi.
Vestmannaeyjabær hefur jafnframt tilkynnt um kertastund við kirkjugarðinn um kvöldið. Dagskrá í Vestmannaeyjum
Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er haldinn þriðja sunnudag í nóvember ár hvert. Samkvæmt fréttatilkynningu Samgöngustofu eru minningarstundir fyrirhugaðar á að minnsta kosti 17 stöðum á landinu og hafa þær aldrei verið fleiri.
Í nýrri könnun Samgöngustofu sögðust rúmlega 26 prósent svarenda hafa misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi. Samkvæmt tölum stofnunarinnar létust 12 í umferðinni hér á landi frá áramótum til 10. nóvember.
Í ár er sjónum sérstaklega beint að ungu fólki og hættunni sem fylgir hraðakstri. Samgöngustofa segir unga ökumenn hlutfallslega líklegri til að lenda í slysum en eldri ökumenn. Slysum af völdum ungra ökumanna hefur þó fækkað talsvert á síðustu 20 árum.
Dagskrá minningarstunda um land allt má finna á minningardagur.is.