Eyjakonur geta jafnað Hauka á toppnum

Kvennalið ÍBV í handknattleik sækir topplið Hauka heim í dag, laugardaginn 14. nóvember, í níundu umferð Olísdeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 13:00 í Kuehne+Nagel-höllinni í Hafnarfirði. Aðeins tvö stig skilja liðin að og geta Eyjakonur jafnað Hauka að stigum með sigri. Haukar hafa farið afar vel af stað í vetur og unnið alla átta deildarleiki sína. […]