Kvennalið ÍBV í handbolta nældi sér í eitt stig á Ásvöllum í dag þegar liðið gerði 31-31 jafntefli við topplið Hauka í 9. umferð Olís deildar kvenna eftir æsispennandi lokamínútur.
Heimakonur í Haukum byrjuðu leikinn betur og náðu þriggja marka forskoti, 4-1, eftir rúmlega fimm mínútna leik. Haukar héldu forystunni næstu mínútur en Eyjakonur náðu góðum kafla og jöfnuðu metin í 7-7 þegar stundarfjórðungur var liðinn.
ÍBV sótti þá í sig veðrið og náði undirtökunum undir lok fyrri hálfleiks. Eyjakonur leiddu með einu marki í hálfleik, 14-15.
Fyrstu mínútur síðari hálfleiks voru afar jafnar og var staðan 18-18 þegar sjö mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Haukar náðu hins vegar forystunni á ný og höfðu byggt upp fjögurra marka forskot, 23-19, þegar 18 mínútur voru eftir af leiknum.
Lokamínútur leiksins voru æsispennandi en Haukar leiddu 30-29 þegar fjórar mínútur voru eftir. Heimakonur náðu svo að auka forskotið í tvö mörk þegar rúm mínúta var til leiksloka. Eyjakonur gáfust þó ekki upp, minnkuðu muninn og jöfnuðu metin í 31-31 þegar skammt var eftir.
Haukar fengu þá tækifæri til að tryggja sér sigurinn en Cornelia Linnea Hermansen, markvörður ÍBV, náði að verja. Eyjakonur fengu síðasta tækifærið til að stela sigrinum en markvörður Hauka varði frá Andreu Jacobsen á lokasekúndunni. Jafntefli, 31-31, varð því niðurstaðan á Ásvöllum.
Andrea Jacobsen var atkvæðamest í liði ÍBV og jafnframt markahæst í leiknum með 10 mörk. Ólöf Maren Bjarnadóttir varði sjö skot í marki Eyjakvenna og Cornelia Linnea Hermansen tvö.
Haukar sitja áfram á toppi deildarinnar, með 17 stig en ÍBV fer upp fyrir Val og í annað sæti með 15 stig.
Mörk ÍBV: Andrea Jacobsen 10 mörk, Sandra Erlingsdóttir 8, Amelía Dís Einarsdóttir 4, Ásta Björt Júlíusdóttir 3, Agnes Lilja Styrmisdóttir 3, Birna María Unnarsdóttir 2, Ásdís Halla Hjarðar 1.