Íþróttamiðstöðin eitt af táknum endurreisnar Eyja

Páll Zóphóníasson, fyrrverandi bæjarstjóri og bæjartæknifræðingur, rifjaði upp aðdraganda og byggingu Íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja við 50 ára afmælisathöfn hennar. Hann kom sjálfur að undirbúningi mannvirkisins frá upphafi og lýsti því hvernig ráðist var í framkvæmdina á sama tíma og endurreisn bæjarins eftir gosið stóð enn yfir. Í ávarpinu fjallar Páll meðal annars um fjármögnun byggingarinnar, ágreining […]

ÍBV tapaði með fjórum mörkum gegn Val

ÍBV og Valur mættust í 2. umferð Olísdeildar kvenna í N1-höllinni í kvöld, þar sem Valskonur höfðu betur, 31–27. Eftir tvær umferðir situr ÍBV í 7. sæti deildarinnar með tvö stig. Valur er sæti ofar, einnig með tvö stig. Valskonur höfðu yfirhöndina frá upphafi leiks og leiddu með fjórum mörkum, 8–4, eftir stundarfjórðung. Valur náði […]

ÍBV tapaði gegn Stjörnunni í fyrsta leik neðri hlutans

ÍBV og Stjarnan mættust í fyrstu umferð neðri hluta Bestu deildar karla á Samsung vellinum í Garðabæ í dag. Fyrir leikinn var Stjarnan á toppi neðri hlutans en ÍBV í botnsætinu. Stjörnumenn reyndust sterkari aðilinn í leiknum og unnu 2-0 sigur. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks. Eyjamenn urðu þó fyrir áfalli á 14. […]

Fjármagn ótryggt fyrir Herjólf III sem varaskip í vetur

Ekki hefur verið tryggt fjármagn til að reka Herjólf III sem varaskip fyrir Herjólf IV á komandi vetri. Bæjarstjórn Vestmannaeyja leggur þunga áherslu á að úr því verði bætt og að fyrirbyggjandi dýpkun Landeyjahafnar verði jafnframt tryggð. Samgöngumál voru rædd á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja á miðvikudag. Þar fór Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri yfir fund bæjarráðs með […]

Í Betel er bara lifað

Snorri Óskarsson, jafnan kenndur við Betel, þekkir sögu safnaðarins í Vestmannaeyjum öðrum fremur. Hann veitti Betelsöfnuðinum forstöðu í aldarfjórðung og hefur alla tíð verið óhræddur við að halda fram þeim sjónarmiðum sem hann telur eiga skýra stoð í Biblíunni. Í tilefni af aldarafmæli Betels lítur Snorri yfir farinn veg og segir baráttu hafa verið rauðan […]

HSU kynnti nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

Notkun gervigreindar í heilsugæslu, á hjúkrunarheimilum og við myndgreiningu á bráðamóttöku var meðal þess sem kynnt var á Nýsköpunardegi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) á Hótel Selfossi. Þetta kemur fram í umfjöllun sem birtist á vef HSU fyrir helgi. Gunnar Thorarensen, yfirlæknir Stafrænnar heilsu, opnaði dagskrána og kynnti starfsemi miðstöðvarinnar, sem vinnur að þróun og nýsköpun fyrir […]

Fimm börn fædd í Betel 

Vitað er um fimm börn sem fæddust í Betel við Faxastíg 6. Þar voru tveir samkomusalir og á efri hæð í vesturendanum var lítil íbúð. Á neðri hæðinni var snyrting, geymsla og aukaherbergi. Þarna bjuggu gjarnan forstöðumenn safnaðarins ásamt fjölskyldum sínum.   Fyrstur fæddist í Betel Daníel Jónasson (17. júní1938–16. júlí 2022), tónlistarkennari og sagnfræðingur. Foreldrar […]

Eyjakonur sækja Íslandsmeistarana heim

Kvennalið ÍBV í handbolta sækir Val heim í Olísdeildinni í dag, sunnudag. Leikurinn hefst klukkan 18:00 í N1 höllinni og er sjónvarpsleikur umferðarinnar, samkvæmt samfélagsmiðli ÍBV handbolta. Eyjakonur hófu tímabilið með 32:28 sigri á KA/Þór í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og eru því með tvö stig eftir einn leik. Valur tapaði sínum fyrsta leik, 21:25 gegn Selfossi […]

ÍBV mætir Stjörnunni í fyrsta leik neðri hlutans

Karlalið ÍBV í fótbolta sækir Stjörnuna heim í Garðabæ í dag, sunnudag, í fyrsta leik liðanna eftir skiptingu Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 14:00 á Samsungvellinum. ÍBV fer inn í neðri hlutann með 18 stig eftir 22 leiki og er í sjötta sæti af sex liðum. KA er næst fyrir ofan með 20 stig en […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.