ÍBV tapaði með fjórum mörkum gegn Val
Frá leik ÍBV og Vals á síðustu leiktíð. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og Valur mættust í 2. umferð Olísdeildar kvenna í N1-höllinni í kvöld, þar sem Valskonur höfðu betur, 31–27. Eftir tvær umferðir situr ÍBV í 7. sæti deildarinnar með tvö stig. Valur er sæti ofar, einnig með tvö stig.

Valskonur höfðu yfirhöndina frá upphafi leiks og leiddu með fjórum mörkum, 8–4, eftir stundarfjórðung. Valur náði mest sjö marka forskoti í fyrri hálfleik, en Eyjakonur minnkuðu muninn undir lok hálfleiksins. Staðan í hálfleik var 16–13.

Valskonur héldu forskoti sínu í síðari hálfleik og leiddu með fjórum mörkum, 26–22, þegar 15 mínútur voru til leiksloka. ÍBV minnkaði muninn í þrjú mörk þegar rúmar sex mínútur voru eftir, en Valskonur gáfu ekkert eftir og héldu forskoti sínu til leiksloka. ÍBV mátti því að lokum sætta sig við fjögurra marka tap, 31–27.

Andrea Jacobsen var markahæst í liði ÍBV með fimm mörk. Guðrún Hekla Traustadóttir hjá Val var markahæst í leiknum með átta mörk.

Mörk ÍBV: Andrea Jacobsen 5 mörk, Sandra Erlingsdóttir 5, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Ásdís Halla Hjarðar 3, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Birna Berg Haraldsdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 1, Klara Káradóttir.

Nýjustu fréttir

Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.