Fimm börn fædd í Betel 
Fjölskyldan í Betel í kringum 1955 til 1956. F.v.: Einar J. Gíslason, Guðni Einarsson, Guðrún Margrét Einarsdóttir og Guðný Sigurmundsdóttir.
Gudni Einars
Guðni
Einarsson

Vitað er um fimm börn sem fæddust í Betel við Faxastíg 6. Þar voru tveir samkomusalir og á efri hæð í vesturendanum var lítil íbúð. Á neðri hæðinni var snyrting, geymsla og aukaherbergi. Þarna bjuggu gjarnan forstöðumenn safnaðarins ásamt fjölskyldum sínum.  

Á sumarmóti hvítasunnumanna í Eyjum 2021 hittust þessi fjögur sem öll fæddust í Betel. F.v.: Guðrún Margrét Einarsdóttir, Guðni Einarsson, Daníel Jónasson og Vilhjálmur Haraldsson.

Fyrstur fæddist í Betel Daníel Jónasson (17. júní1938–16. júlí 2022), tónlistarkennari og sagnfræðingur. Foreldrar hans voru Guðbjörg Guðjónsdóttir frá Skaftafelli í Vestmannaeyjum og Jónas S. Jakobsson, myndhöggvari, listmálari, sálmaskáld og predíkari.  

Næst fæddist þar Vilhjálmur Haraldsson húsgagasmiður þann 22. júlí 1939. Foreldrar hans voru Magny og Arnulf Harald Kyvik. Þau voru fædd og uppalin í Noregi en höfðu flutt til Bandaríkjanna. Þau komu til Vestmannaeyja 1939 til þess að taka þátt í starfi safnaðarins og dvöldu þar í eitt ár. Þau komu aftur til Eyja og voru þar 1946 til 1948.  

Otto Sigmund Jacobsen (21. febrúar 1941–31. júlí 2017), kjötiðnaðarmaður og tryggingastarfsmaður, var þriðja barnið sem fæddist í Betel. Foreldrar hans voru norskir, Sigmund Wessel Jacobsen og Milda Spånberg Jacobsen. Þau veittu Betelsöfnuðinum forstöðu frá 1941 til stríðsloka 1945. Otto var þeirra fyrsta barn og vegna stríðsins fréttu ættingjar þeirra í Noregi ekkert af fæðingu hans fyrr en eftir stríð. Systir Ottos, Ester Karin, er eiginkona Varðar Leví Traustasonar frá Hjarðarholti í Vestmannaeyjum. Þau voru forstöðuhjón í Fíladelfíu á Akureyri og síðar í Fíladelfíu í Reykjavík. 

Einar Jóhannes Gíslason frá Arnarhóli, Einar í Betel, tók við sem forstöðumaður í Betel 1948 og hann og Guðný Sigurmundsdóttir bjuggu þar til 1957. Í Betel fæddust þeim börnin Guðrún Margrét þann 16. desember 1949 og Guðni þann 23. febrúar 1953. 

Nýjustu fréttir

Fimm börn fædd í Betel 
Eyjakonur sækja Íslandsmeistarana heim
ÍBV mætir Stjörnunni í fyrsta leik neðri hlutans
Syðsti hluti Heimaeyjar eins og við sjáum hann sjaldan
50 ára sögu Íþróttamiðstöðvarinnar fagnað
Tómas Bent lagði upp mark í sigri Hearts
Flóðljósin á Hásteinsvelli komin í gagnið
Betel rís í Eyjum – Hundrað ára byggingarsaga 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.