ÍBV með ótrúlegan endurkomusigur gegn Fram

ÍBV og Fram mættust í Lambhagahöllinni í 3. umferð Olís deildar karla í kvöld. Eyjamenn unnu þar frábæran endurkomusigur, 30-33, eftir að hafa verið níu mörkum undir í fyrri hálfleik. Jafnræði var með liðunum framan af í fyrri hálfleik og var staðan jöfn, 8-8, eftir átta mínútna leik. Framarar tóku þá að síga fram úr […]
Hætt við efnistöku við Eldfellsveg

Eitthvað af efni var fjarlægt af svæði við Eldfellsveg þegar verktaki kannaði þar mögulega efnistöku. Ekkert formlegt framkvæmdaleyfi hafði verið gefið út vegna aðgerðanna. Eyjafréttum barst í byrjun september ábending um að efnistaka færi fram á svæðinu. Ljósmynd sem tekin var á vettvangi sýndi gröfu að störfum í hrauninu. Fyrirspurn var í kjölfarið send Vestmannaeyjabæ […]
Vosbúð styrkir mikilvægt starf Krabbavarnar

Vosbúð nytjamarkaður hefur veitt Krabbavörn Vestmannaeyja 250 þúsund króna styrk. Vosbúð er vinsæll flóa- og nytjamarkaður að Flötum 18. Markaðurinn gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu í Eyjum og hefur í gegnum tíðina styrkt góð málefni á svæðinu. Styrkurinn til Krabbavarnar rennur til stuðnings einstaklingum í Vestmannaeyjum sem greinast með krabbamein. Olga Bjarnadóttir, stjórnarmaður í Krabbavörn […]
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu

Orka náttúrunnar hefur undirritað samkomulag um að gerast formlegur bakhjarl Uppsprettu Suðurlands – hátíðar vaxtar og verðmætasköpunar. Hátíðin sameinar ráðstefnu, sýningarsvæði og tengslamyndun þar sem frumkvöðlar, starfandi fyrirtæki, fjárfestar, sveitarfélög og almenningur koma saman í Horseday-höllinni í Ölfusi dagana 6. og 7. nóvember 2026. Að baki Uppsprettu standa Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Háskólafélag Suðurlands og […]
Halldór smíðakennari – Stoltur af mínu fólki

Mikil uppbygging hefur orðið í verknámi við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum á síðustu árum og áhuginn hefur vaxið hratt. Húsasmíðanámið er gott dæmi. Þar er nú svo komið að færri komast að en vilja. Halldór Hjörleifsson, húsasmíðameistari og byggingariðnfræðingur kom að uppbyggingu námsins frá haustinu 2023 og hóf kennslu á vorönn 2024. Í vor náðist stór […]
Samningi við Endurvinnsluna sagt upp vegna breyttra áherslna hjá Heimaey

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að segja upp samningi við Endurvinnsluna hf. frá og með 1. febrúar næstkomandi. Ákvörðunin er liður í endurskipulagningu á starfsemi Heimaeyjar vinnu- og hæfingarstöðvar. Fram kemur í fundargerð ráðsins að stefnt sé að því að efla Heimaey sem virkni- og hæfingarstöð, með aukinni áherslu á virkni og hæfingu þjónustuþega. […]
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga auglýsa nú eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Suðurlands fyrir árið 2026. Sjóðurinn opnaði formlega fyrir umsóknir í gær, miðvikudaginn 16. september og er honum ætlað að styðja við nýsköpun, atvinnulíf og menningu um allan landshluta. Umsóknarfrestur rennur út þann 21. október næstkomandi klukkan 14:00 og eru Sunnlendingar hvattir til að nýta þetta tækifæri […]