Samningi við Endurvinnsluna sagt upp vegna breyttra áherslna hjá Heimaey
Húsnæði Heimaeyjar vinnu- og hæfingarstöðvar. Fyrirhugað er að ráðast í endurbætur og laga húsnæðið betur að starfseminni. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að segja upp samningi við Endurvinnsluna hf. frá og með 1. febrúar næstkomandi. Ákvörðunin er liður í endurskipulagningu á starfsemi Heimaeyjar vinnu- og hæfingarstöðvar.

Fram kemur í fundargerð ráðsins að stefnt sé að því að efla Heimaey sem virkni- og hæfingarstöð, með aukinni áherslu á virkni og hæfingu þjónustuþega. Horft verði til starfsemi sambærilegra stöðva hjá öðrum sveitarfélögum.

Ráðið tekur fram að breytingin feli ekki í sér skerðingu á þjónustu Heimaeyjar. Um sé að ræða breytingar á áherslum og fyrirkomulagi þjónustunnar, með það að markmiði að mæta betur ólíkum þörfum þeirra sem þar njóta þjónustu.

Endurbætur fyrirhugaðar á húsnæðinu

Jafnframt eru fyrirhugaðar endurbætur á húsnæði Heimaeyjar til að bæta aðstöðuna og laga hana betur að starfseminni.

Áður en ráðist verður í framkvæmdirnar verður skoðað hvernig nýta megi rýmið sem Endurvinnslan hefur nú til umráða. Við það verði meðal annars tekið mið af framtíðarþörfum starfseminnar og fjölgun þeirra einstaklinga sem þurfa á virkni og hæfingu að halda.

Markmið breytinganna er, að sögn ráðsins, að styrkja starfsemi Heimaeyjar og tryggja að húsnæði og aðstaða geti betur mætt þörfum þjónustuþega til framtíðar.

Nýjustu fréttir

Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Kótilettur til góðs í Höllinni
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Aglow-konur hittast í kvöld
Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.