Vosbúð styrkir mikilvægt starf Krabbavarnar
Vosbúð nytjamarkaður að Flötum 18 hefur veitt Krabbavörn Vestmannaeyja 250 þúsund króna styrk. Eyjafréttir/TMS

Vosbúð nytjamarkaður hefur veitt Krabbavörn Vestmannaeyja 250 þúsund króna styrk. Vosbúð er vinsæll flóa- og nytjamarkaður að Flötum 18. Markaðurinn gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu í Eyjum og hefur í gegnum tíðina styrkt góð málefni á svæðinu.

Styrkurinn til Krabbavarnar rennur til stuðnings einstaklingum í Vestmannaeyjum sem greinast með krabbamein. Olga Bjarnadóttir, stjórnarmaður í Krabbavörn Vestmannaeyja, segir í samtali við Eyjafréttir, alla styrki sem félaginu berast renna beint til þeirra sem greinast með sjúkdóminn.

Til að eiga rétt á stuðningi þarf viðkomandi að vera félagsmaður í Krabbavörn og með lögheimili í Vestmannaeyjum. Félagið styrkir meðal annars ferðir sem einstaklingar þurfa að fara í vegna veikindanna. Þá greiðir félagið einnig kostnað vegna dvalar maka á sjúkrahóteli þegar þess gerist þörf.

„Kærar þakkir fyrir rausnarlegan styrk sem þið veittuð okkur hjá Krabbavörn Vestmannaeyja. Stuðningur ykkar skiptir okkur miklu máli og við erum afar þakklát fyrir hlýhuginn og velviljann,“ segir Olga að lokum.

Nýjustu fréttir

Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.