Elís Þór framlengir við ÍBV til 2028

Elís Þór Aðalsteinsson hefur gert nýjan samning við handknattleiksdeild ÍBV sem gildir út næsta keppnistímabil 2027-28. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag. Í tilkynningunni segir að Elís hafi gegnt lykilhlutverki í liði ÍBV undanfarin ár og átt frábært tímabil á síðustu leiktíð. Hann hefur leikið upp öll yngri landslið Íslands og síðast […]
Tveir tapaðir mánuðir í upphafi sumars

Ferðamannasumarið í Vestmannaeyjum fór hægt af stað vegna erfiðleika í samgöngum en tók vel við sér þegar leið á sumarið. Jón Þór Guðjónsson, formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja, segir fyrirtæki í greininni almennt sátt við sumarið þrátt fyrir mikið tekjutap á fyrstu mánuðum ferðamannatímabilsins. Samgöngurnar séu áfram stærsta áskorunin, en jafnframt séu mikil tækifæri til frekari vaxtar […]
Átta vilja verða tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi

Átta sóttu um starf tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúa hjá Vestmannaeyjabæ. Þetta kemur fram í svari bæjarins við fyrirspurn Eyjafrétta, en umsóknarfrestur rann út 18. september. Umsækjendur eru: Daníel Geir Moritz Hjörvarsson Hekla Sól Jóhannsdóttir Jóhanna Helga Sigurðardóttir Magnús Karl Magnússon Petrúnella A. Kristjánsdóttir Sigríður Sæland Óðinsdóttir Sigurbergur Sveinsson Svanhildur Eiríksdóttir Um er að ræða […]
Ekki hægt að bóka tíma hjá augnlækni í Eyjum

Ekki liggur fyrir hvenær augnlæknir kemur næst til Vestmannaeyja og því er ekki hægt að panta tíma hjá augnlækni á starfsstöð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Eyjum. Sérhæfður tækjabúnaður sem keyptur var fyrir tæpar 35 milljónir króna er þó áfram í notkun við fjaraugnlækningar. Þetta kemur fram í svörum Díönu Óskarsdóttur, forstjóra HSU, við fyrirspurn Eyjafrétta. Fjarþjónusta […]
Læsti 130 milljóna Lottómiða inni í skáp

Kona á níræðisaldri vann tæpar 130 milljónir króna í Lottó síðasta laugardag. Hún hafði beðið son sinn að kaupa sjálfvalinn miða fyrir sig þegar hann skaust í Fjarðarkaup. Miðinn reyndist sá eini með allar tölurnar réttar og skilaði konunni öllum sexfalda Lottópottinum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Konan vissi ekki af vinningnum […]
Formaður Sjálfstæðisflokksins á fundi í Ásgarði á morgun

Sjálfstæðisflokkurinn hefur vetrardagskrá sína með opnum fundi í Ásgarði á morgun, laugardaginn 26. september, klukkan 12. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, verður gestur fundarins. Alþingismennirnir Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Árni Helgason og Sigurður Örn Hilmarsson verða einnig á fundinum, svara fyrirspurnum og ræða við fundargesti. Í […]