Elís Þór Aðalsteinsson hefur gert nýjan samning við handknattleiksdeild ÍBV sem gildir út næsta keppnistímabil 2027-28. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.
Í tilkynningunni segir að Elís hafi gegnt lykilhlutverki í liði ÍBV undanfarin ár og átt frábært tímabil á síðustu leiktíð. Hann hefur leikið upp öll yngri landslið Íslands og síðast með U21 árs landsliðinu á heimsmeistaramótinu í sumar.
Elís Þór vinnur nú hörðum höndum að endurhæfingu eftir aðgerð sem hann gekkst undir í sumar, í kjölfar meiðsla sem hann varð fyrir í landsliðsverkefni.
„Elís stefnir á að koma tvíefldur til leiks á næsta tímabili,“ segir í tilkynningu ÍBV.
Handknattleiksdeild ÍBV kveðst afar ánægð með samninginn og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við Elís.
„Við stöndum þétt við bakið á Elís í bataferlinu og hlökkum til að sjá hann aftur á vellinum,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
