Læsti 130 milljóna Lottómiða inni í skáp
Miðinn góði skilaði veglegum vinning.

Kona á níræðisaldri vann tæpar 130 milljónir króna í Lottó síðasta laugardag. Hún hafði beðið son sinn að kaupa sjálfvalinn miða fyrir sig þegar hann skaust í Fjarðarkaup.

Miðinn reyndist sá eini með allar tölurnar réttar og skilaði konunni öllum sexfalda Lottópottinum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Konan vissi ekki af vinningnum fyrr en daginn eftir útdráttinn. Sonur hennar hafði þá séð fréttir af honum og fór í heimsókn til móður sinnar til að fara yfir tölurnar. Þegar ljóst var að hún ætti vinningsmiðann var hann læstur inni í skáp. Fyrst þá voru hin börnin látin vita.

Í tilkynningunni segir að börnin og makar þeirra hafi átt svefnlitla nótt, en konan sagðist sjálf hafa sofið eins og ungabarn. Á mánudag var miðinn sóttur úr skápnum og farið með hann í höfuðstöðvar Íslenskrar getspár, þar sem vinningurinn var staðfestur. Vinningshafinn sagðist enn varla hafa náð að meðtaka tíðindin.

Nýjustu fréttir

Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.