Það sem vikan skilur eftir sig

Sumar vikur virðast fréttirnar eiga lítið sameiginlegt. Ferðaáætlun Herjólfs, augnlæknaþjónusta, varaafl og bjargdúfur eru ekki efni sem maður setur venjulega í sömu setningu. En þegar vikan er gerð upp kemur í ljós að á bak við þessi mál er svipuð spurning: Getum við treyst því að þjónustan virki og að ákvarðanir séu skýrðar þegar þær […]
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ríkisstjórnin eigi ekki langt eftir og að stutt geti verið í alþingiskosningar. Þetta kom fram á opnum fundi flokksins í Ásgarði í Vestmannaeyjum í gær. Staða ríkisstjórnarinnar var meðal þess sem Guðrún ræddi og var hún gagnrýnin á störf hennar. Hún taldi ekki sjálfgefið að stjórnin sæti út kjörtímabilið […]
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir

Lundaballið fór fram með pompi og prakt í Höllinni í gærkvöldi, en ballið var í höndum Suðureyjinga að þessu sinni. Níu ár voru liðin frá því að félagið hélt ballið síðast og var því komið að þeim að setja sinn svip á þessa rótgrónu uppskeruhátíð bjargveiðimanna. Á boðstólum voru meðal annars reyktur lundi og svartfugl, […]
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar

Fræðsluráð Vestmannaeyja hefur óskað eftir drögum að endurskoðaðri gjaldskrá Frístundar. Ákvörðunin kemur í kjölfar heimsóknar ráðsins í Frístund miðvikudaginn 23. september, þar sem rætt var um hvort gjaldskráin kunni að hafa áhrif á skráningu og nýtingu þjónustunnar. Sigurleif Kristmannsdóttir, deildarstjóri Frístundar, tók á móti ráðinu og kynnti starfsemina, helstu verkefni og aðstöðu. Ráðsfulltrúar ræddu einnig […]