Lundaballið haldið í Höllinni - myndir
Margt var um manninn á Lundaballinu sem haldið var í gær. Myndir: Óskar Pétur

Lundaballið fór fram með pompi og prakt í Höllinni í gærkvöldi, en ballið var í höndum Suðureyjinga að þessu sinni. Níu ár voru liðin frá því að félagið hélt ballið síðast og var því komið að þeim að setja sinn svip á þessa rótgrónu uppskeruhátíð bjargveiðimanna. Á boðstólum voru meðal annars reyktur lundi og svartfugl, auk úrvals fisk- og kjötrétta.

Heimagerð skemmtiatriði voru á dagskrá og Jónsi í Svörtum fötum og Gosarnir léku fyrir dansi.

Óskar Pétur Friðriksson var á staðnum og fangaði stemninguna.

Nýjustu fréttir

Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.