Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Frístund er til húsa í Hamarsskóla. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Fræðsluráð Vestmannaeyja hefur óskað eftir drögum að endurskoðaðri gjaldskrá Frístundar. Ákvörðunin kemur í kjölfar heimsóknar ráðsins í Frístund miðvikudaginn 23. september, þar sem rætt var um hvort gjaldskráin kunni að hafa áhrif á skráningu og nýtingu þjónustunnar.

Sigurleif Kristmannsdóttir, deildarstjóri Frístundar, tók á móti ráðinu og kynnti starfsemina, helstu verkefni og aðstöðu. Ráðsfulltrúar ræddu einnig við starfsfólk um þjónustuna og hlutverk Frístundar.

Samkvæmt fundargerð fól ráðið sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs og deildarstjóra Frístundar að bera gjaldskrána saman við gjaldskrár sambærilegra sveitarfélaga og leggja drög að endurskoðaðri gjaldskrá fyrir næsta fund ráðsins. Þá óskaði ráðið eftir kynningu á gildandi reglum Frístundar og mati á því hvort ástæða sé til að endurskoða þær, meðal annars með hliðsjón af fyrirkomulagi skráninga.

Nýjustu fréttir

Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.