Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora

Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., fagnar yfirlýsingu Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um að gert sé ráð fyrir kaupum á tveimur vararafmótorum fyrir Herjólf í fjárlagafrumvarpi ársins 2027. Ráðherra greindi frá því að fjármagni hefði sérstaklega verið forgangsraðað til kaupanna. „Við fögnum þessum skilaboðum ráðherra. Þegar við leituðum eftir fjármögnun kaupanna höfðum við fengið þær upplýsingar […]
Kótilettur til góðs í Höllinni

Kótilettuklúbbur Vestmannaeyja stendur fyrir kótilettukvöldi í Höllinni fimmtudaginn 15. október. Að þessu sinni rennur ágóði kvöldsins til Krabbavarna Vestmannaeyjum og Hollvinasamtaka Hraunbúða. Húsið opnar klukkan 18:30 og borðhald hefst klukkan 19. Á matseðlinum verða kótilettur í raspi með hefðbundnu meðlæti og eftirrétti. Aðgangseyrir er 5.000 krónur. Þátttaka er staðfest með greiðslu inn á reikning Kótilettuklúbbsins […]
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum

Brunaæfing fór fram föstudaginn 2. október í Kjarnanum, íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Vestmannaeyjum. Markmiðið var að æfa viðbrögð við mögulegum eldsvoða og tryggja að íbúar og starfsfólk þekki verklag og öruggar rýmingarleiðir. Þetta kemur fram í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar. Áður en æfingin hófst fengu íbúar og starfsfólk fræðslu um eldvarnir og viðbrögð ef […]
Aglow-konur hittast í kvöld

Aglow-samvera verður í Safnaðarheimili Landakirkju í kvöld, miðvikudaginn 7. október, kl. 19.30. Samveran hefst með hressingu og samfélagi, en síðan verður sungið, beðið saman og hlýtt á boðskap. Allar konur eru velkomnar, að því er segir í tilkynningu frá stjórn Aglow í Vestmannaeyjum. Á fundinum munu konur sem sóttu Aglow-ráðstefnu í Skálholtsbúðum helgina 2.–4. október […]